,,Þessi dýrðarinnar dagur er fyrsti dagur sumarfrísins, framundan er algjört frelsi.”
Með þessum orðum vekur hinn talandi hundur Lubbi eiganda sinn, Tinnu trassa, einn morguninn. Það eina sem skyggir á gleðina er nammibindindið sem mamma Tinnu hefur skikkað hana í – en hver tekur mark á slíku? Í brjálæðislegri súkkulaðiþörf æða Tinna, Lubbi og afi unglingur út í borgina í leit að pabba Tinnu sem leyfir allt. En borgin er hættuleg og mannlífið flókið – fyrr en varir eru félagarnir á æsispennandi flótta undan tískulöggunni og hyski hans og hinn rétti Guðjón Ísleifsson, öðru nafni pabbi, hvergi í sjónmáli.
Eftir Þórarinn Leifsson og Auði Jónsdóttur. Þórarinn myndskreytti.