![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| BOOKS | ILLUSTRATION | THORARINN | PAST |
Ég í útvarpinu
Ég afrekaði að koma fram tvisvar í ríkisútvarpi allra landsmanna í sömu vikunni. Samtals hátt í klukkustund af blaðri í beinni útsendingu. Tilefnið var að ég fékk verðlaun fyrir „Bókasafn ömmu Huldar“ frá Reykjavíkurborg. Það fer nokkuð vel um mig í hljóðveri en eftir lengra viðtalið fékk ég vægan hausverk eins og ennið væri fullt af ryki.
Hjá Jórunni Sigurðardóttur í Okkar á Milli. 40 mínútur um ferilinn. Eitthvað komið inn á næstu bók sem fjallar um flakk og götumálverk.
Hlusta hér
Hjá Leifi Haukssyni í Lesandi vikunnar. 15 mínútur.
Hlusta hér
Bækurnar sem ég fór með í hljóðver voru þessar:
Historiebogen - sænsk teiknimyndabók frá 1981. Sagan í myndum frá sjónarhorni rétthugsandi vinstri manna.
Verdens historie - norsk bókaröð eftir Carl Grimberg. Ég hef alltaf haldið að Grimberg væri
norskur vegna þess að mér var sagt það þegar ég var krakki. Nú kemst ég að því á Wikipedia
að hann var sænskur.
The thief´s journal eftir Jean Genet.
Í reiðileysi í London og París eftir George Orwell.
Meistarinn og Margarita eftir Bulgakov.
Recuerdos y opiniones eftir Robert Crumb. Upprunalega á ensku en ég keypti þessa þýðingu í Barcelona.
Anarcoma 2. Teikni-myndabók af grófari gerðinni.




Set „like“ á þetta.
Set „like“ á þetta. Og til lukku með forsetafarsann í Iðnó, skemmtileg nálgun. Og til hamingju með verðlaunin !